Forsíða
> Fréttir og greinar > Fljótsdalslínur 3 og 4 > Mat á umhverfisáhrifum
Mat á umhverfisáhrifum
Miðvikudagur 9. júní 2004
Landsvirkjun hannar og undirbýr Fljótsdalslínur 3 og 4 í samræmi við skilyrði í sex liðum sem umhverfisráðherra setti í úrskurði sínum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Landsvirkjun lagði frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalslína 3 og 4 fyrir Skipulagsstofnun í mars 2000.
Skipulagsstofnun féllst á framkvæmdina með úrskurði 27. maí 2000 en setti jafnframt fimm skilyrði:
Kröflulína 2 verði flutt og lögð suður eftir Fljótsdalsheiði, fram af Teigsbjargi að tengivirki vrkjunar í Fljótsdal, og þaðan í jörð að Brattagerði eigi síðar en árið 2006.
Staðsetningu Fljótsdalslína 3 og 4 í Fljótsdal og yfir Gilsárgil verði hagað þannig að þær valdi sem minnstum sjónrænum áhrifum. Fljótsdalslína 4 raski ekki Nykurtjörn í Skriðdal og nánasta umhverfi hennar.
Náið samráð verði haft við Umhverfisstofnun um endanlega legu vegslóða og línumastra, efnistöku og frágang að framkvæmdum loknum.
Samráð verði haft við Náttúrufræðistofnun Íslands um tilhögun framkvæmda við hreiður fálka á varptíma.
Ljúka skal fornleifakönnun á áhrifasvæði framkvæmdarinnar í samráði við Þjóðminjasafn Íslands (Fornleifavernd ríkisins).
Úrskurður Skipulagsstofnunar var kærður til umhverfisráðherra sem staðfesti úrskurð skipulagsstjóra 23. nóvember 2000 með einu viðbótarskilyrði:
Fljótsdalslína 3 skal lögð samsíða Fljótsdalslínu 3 um Hallormsstaðarháls.